Félagsmenn
Landssamtök foreldra, Heimili og skóli voru stofnuð 17. september 1992. Markmið þeirra er að stuðla að bættum uppeldis- og menntunarskilyrðum barna og unglinga. Þúsundir foreldra eru félagar í Heimili og skóla og með stuðningi þeirra hefur tekist að byggja upp þjónustu við foreldra og félög þeirra. Aðaláherslur í starfseminni eru þessar:
- Að veita foreldrum / félagsmönnum stuðning og liðveislu og miðla upplýsingum til foreldra svo að þeir geti betur sinnt uppeldi barna sinna og skólagöngu þeirra.
- Að koma sjónarmiðum foreldra á framfæri við yfirvöld og vinna að því að auka áhrif foreldra á skólastarf.
- Að efla starf foreldrafélaga og leggja þeim lið svo að þau verði sem virkust þannig að foreldrar finni þar vettvang til samstarfs við skólann og til þátttöku í foreldrastarfi á landsvísu.



