Frá formanni
11. ágúst 2011
Þá hefst nýtt skólaár og ég vona að það verði ánægjulegt fyrir nemendur og foreldra. Það er til mikils að hlakka fyrir nemendur sem allir takast á við nýjar áskoranir og ævintýri. Leikskólabörn stíga fyrstu skrefin í skólagöngunni, sex ára börn geta varla beðið eftir fyrsta skóladeginum og nýnemar framhaldsskólanna eru hugsi yfir öllum skólabókum … og fyrsta skólaballinu.
Við foreldrarnir vonum að allt muni ganga vel hjá börnunum og ætlum að styðja við þau eins og kostur er. Við vonumst til að eiga góð samskipti við kennarana og skólann. Reynslan sýnir þó að við foreldrar hegðum okkur misjafnlega eftir skólastigum. Okkur þykir eðlilegt að spjalla kumpánalega við leikskólakennarana á morgnanna þegar við komum með börnin. Við grunnskólakennarann skiptumst við á stuttum og hagnýtum upplýsingum endrum og eins, en í framhaldsskólann stígum við helst ekki fæti og vitum eiginlega ekki hvort við eigum að trufla kennarana með tölvupósti ef eitthvað er óljóst.
Slík feimni foreldra við skólann getur haft letjandi áhrif á árangur skólabarna. Í nýlegri bók Nönnu K. Christiansen, Skóli og skólaforeldrar, eru færð rök fyrir því að aukin þátttaka foreldra í skólastarfi og jákvætt viðhorf þeirra til skólans hafi jákvæð áhrif á árangur nemenda í námi. Svipaðar niðurstöður eru úr nýafstöðnu norrænu þróunarverkefni um samstarf heimilis og skóla sem Kristín Jónsdóttir lektor við HÍ og Sigurlaug Anna Jóhannsdóttir hafa unnið. Þær benda á fjölmargar rannsóknir sem sýna að aukin þátttaka foreldra og jákvætt viðhorf þeirra eykur áhuga og félagslega færni nemenda. Skilaboðin eru skýr: Foreldrar þurfa að vera virkir í skólastarfinu.
Nú í skólabyrjun bíða ærin viðfangsefni á öllum skólastigum. Leikskólaforeldrar eru uggandi yfir sameininga leikskóla og verkfallsumræðu, grunnskólaforeldrar þurfa að kynna sér nýja aðalnámskrá grunnskóla, og framhaldskólaforeldrar sleppa smám saman beislinu af börnum sínum sem takast á við krefjandi nám. Foreldrar unglinga vita einnig að margir hefja vímuefnaneyslu eftir að grunnskóla líkur og á fyrstu vikunum í framhaldsskóla.
Heimili og skóli eru landssamtök foreldra sem hafa það að markmiði að hlú að velferð skólabarna með því að styðja við foreldra og foreldrafélög um allt land. Ný stjórn Heimilis og skóla kom saman í vor og mun næsta árið leggja sérstaka áherslu á eftirfarin málefni: virkja starf foreldra í skólum landsins, efla foreldrafærni, stuðla að jákvæðara viðhorfi til skólastarfsins og styðja við forvarnir gegn fíkniefnum.
Það er von mín að sem flestir foreldrar verði virkir í foreldrastarfi í sínum skóla í vetur og verði þannig mikilvæg stoð í skólasamfélginu.
Ketill B. Magnússon, formaður Heimilis og skóla


