Fréttir
18.08.2009 | Hagnýtt efni
Foreldrasamstarf í leikskólum
Samstarf leikskóla við foreldra skal byggja á þeirri forsendu að foreldrar bera aðalábyrgð á uppeldi og velferð barna sinna. Börn eru farin að dvelja lengur á leikskólanum og flest börn eru í vistun 8-9 tíma á dag. Það liggur því í augum uppi að uppeldið fer þá líka að stórum hluta fram í leikskólanum. Þess vegna er samvinna svo mikilvæg og að báðir aðilar vinni að því að velferð barnsins verði höfð að leiðarljósi.
Í nýju leikskólalögunum eru möguleikar foreldra til að hafa áhrif og að taka þátt í starfsemi leikskóla auknir m.a. með stofnun foreldraráða. Með því að lögfesta stofnun foreldraráða er ekki verið að koma í veg fyrir að foreldrafélög starfi áfram við leikskóla. Lögin gera þvert á móti ráð fyrir því að það sé í höndum foreldra að taka ákvörðun um hvort starfandi sé foreldrafélag samhliða foreldraráði eða ekki. Í foreldraráði skulu sitja foreldrar barna sem eru í leikskóla á hverjum tíma, að lágmarki þrír, og skulu þeir kosnir í september ár hvert til eins árs í senn.
Leikskólastjóra ber að starfa með foreldraráði sem mótar sér starfsreglur. Hlutverk foreldraráðs er að fjalla um og gefa umsögn til leikskólans og leikskólanefndar um skólanámskrá og aðrar þær áætlanir sem varða starfsemi leikskóla, fylgjast með að áætlanir séu kynntar foreldrum og hvernig þær eru framkvæmdar. Þá er einnig gert ráð fyrir að við ákvörðun um allar meiriháttar breytingar á skólastarfi sé haft samráð við foreldraráð. Foreldraráðin taka einnig við ábendingum um það sem betur má fara og koma þeim formlega áleiðis.
Eins og áður sagði þá hvílir ábyrgðin á uppeldi barnanna fyrst og fremst á herðum foreldra en öflugt og náið samstarf þeirra og starfsliðs leikskóla er lykill að vellíðan og þroska barna. Stofnun foreldraráða við er ein leið til að styrkja aðkomu foreldra að málefnum leikskóla þar sem þeim er gefinn kostur á að hafa meiri áhrif á faglegt starf. Leikskólastjóra ber að stuðla að þessu samstarfi, m.a. með því að hafa frumkvæði að stofnun foreldraráðs. Foreldrar leikskólabarna skulu gæta hagsmuna barna sinna. Þeir skulu hafa náið samráð við starfsfólk leikskóla og fylgjast með skólagöngu barna sinna og veita þær upplýsingar sem kunna að skipta máli fyrir skólastarfið og velferð barna. Foreldrar skulu jafnframt eiga rétt á upplýsingum um skólastarfið og stöðu barna sinna.
Í grunnskólanum hafa, undanfarin ár, foreldrafélög og foreldraráð starfað hlið við hlið með góðum árangri. Jákvætt er að sem flestir foreldrar komi að samstarfinu og hafa foreldrafélögin þróast í einskonar stuðningsfélög til að bjóða börnunum upp á fjölbreytta dagskrá og hlaupa undir bagga með skólanum. Nú ætti einnig að létta á ábyrgðinni sem foreldrafélögin hafa haft hvað varðar hina formlegu samvinnu og skýrsluskil svo hægt sé að einbeita sér að þessu skemmtilega. Markmið með foreldrafélögum er í grunninn sú hugsun að tryggja velferð og hagsmuni barnanna. Tengsl foreldra og leikskóla styrkja einnig uppeldisstarf leikskóla og ytri umgerð starfsemi hans.
Foreldrar eru auðlind sem sjálfsagt er að virkja. Hefðbundin starfsemi foreldrafélaganna er að skipuleggja atburði á vegum foreldrafélagsins og leikskólans t.d. ferðalög, föndur, skemmtanir, uppákomur, hátíðir, heimsóknir og stuðning við leikskólastarfið með því að taka þátt í kostnaði og aðstoða við undirbúning. Einnig er tilvalið að virkja fleiri foreldra t.d. með því að fara í vinnustaðaheimsóknir til foreldranna eða bjóða foreldrum að koma í leikskólann með áhugavert efni.
Ég vil hvetja alla foreldra til að leggja fram krafta sína í foreldrastarfinu því það er skemmtilegt, gefandi, áhugavert og allar rannsóknir sýna fram á að virkir foreldrar stuðla að betri námsárangri barnanna okkar og betri líðan í skóla.
Ólöf Dagný Óskarsdóttir
Verkefnastjóri Heimilis og skóla



