Hefur þú orðið fyrir ofbeldi?

1717 (ókeypis, nafnlaust, allan sólarhringinn)

Hringdu í 112 í neyð

Asset 1




Fræðsla fyrir bekkjafulltrúa í grunnskóla

Lýsing á fræðslu

Þessi fræðsla er ætluð bekkjafulltrúum í grunnskóla og hefur það að markmiði að styrkja hlutverk þeirra, efla þátttöku í skólastarfinu og stuðla að góðum samskiptum milli nemenda, foreldra og skóla. Bekkjarfulltrúar gegna mikilvægu hlutverki í samskiptum heimilis og skóla og stuðla að virkri foreldraþátttöku í skólasamfélaginu.

Markmið fræðslunnar

  • Að skýra hlutverk og ábyrgð bekkjafulltrúa.
  • Að veita hagnýtar leiðbeiningar um skipulagningu viðburða og bekkjarstarfs.
  • Að styrkja samstarf foreldra, kennara og skólastjórnenda.
  • Að ræða leiðir til að styðja við jákvæðan bekkjaranda og félagslegt öryggi nemenda.
  • Að efla samskiptahæfni og samvinnu milli bekkjafulltrúa.

Efni fræðslunnar

  • Hlutverk og skyldur bekkjafulltrúa.
  • Góðar leiðir til að efla þátttöku annarra foreldra.
  • Samskipti og samvinna við skóla.
  • Hagnýt ráð við skipulagningu bekkjarviðburða.
  • Dæmi um árangursríkt foreldrasamstarf.

Fyrir hverja?

Fræðslan er ætluð foreldrum/forráðamönnum sem hafa tekið að sér hlutverk bekkjafulltrúa eða hafa áhuga á að taka þátt í foreldrasamstarfi innan skólans.

Tímalengd og framkvæmd

Fræðslan tekur u.þ.b. 40 mínútur ásamt umræðu í kjölfarið og getur farið fram sem hluti af fundi foreldra eða sérstökum fræðslufundi fyrir bekkjafulltrúa.

Hægt er að fá frekari upplýsingar eða bóka fræðsluna á heimiliogskoli@heimiliogskoli.is