Hefur þú orðið fyrir ofbeldi?

1717 (ókeypis, nafnlaust, allan sólarhringinn)

Hringdu í 112 í neyð

Asset 1




Hlaðvarp Heimilis og skóla

Hladvarp

Aðeins um: BeReal


Í þessum þætti af Aðeins um: ræða Eyrún Eva Haraldsdóttir og Sigurður Sigurðsson, sérfræðingar hjá SAFT, um samfélagsmiðilinn BeReal. Hvers konar miðill er BeReal? Afhverju er hann svona vinsæll hjá ungu fólki? Hvað er jákvætt við hann og hvað ber að varast? Í þættinum er einnig rætt um hvað sé gott að ræða við börn og ungmenni þegar kemur að því að vera á BeReal.

Aðeins um: Misskilning á netinu


Í þessum þætti af Aðeins um: ræða Eyrún Eva Haraldsdóttir og Sigurður Sigurðsson, sérfræðingar hjá SAFT, um misskilning á netinu. Hvers vegna á misskilningur á netinu sér stað? Hvernig birtist hann? Hvað er hægt að gera til að koma í veg fyrir misskilning í stafrænum samskiptum? Í þættinum er einnig rætt um lyndistákn og þá misjöfnu merkingu sem fólk leggur í þau.

Aðeins um: Tiktok


Í þessum þætti af Aðeins um: ræða Eyrún Eva Haraldsdóttir og Sigurður Sigurðsson, sérfræðingar hjá SAFT, um samfélagsmiðilinn Tiktok, hvernig hann virkar, hvað ber að varast, hvað er jákvætt við miðilinn og hvernig foreldrar geta hjálpað börnum sínum að nota TikTok á öruggan hátt.

Einhverfa og áskoranir


Hvaða áskoranir þurfa einhverf börn að kljást við í skólanum? Hvað er að vera skynseginn? Hvað er skynvænn skóli? Er foreldrakulnun algeng? Er skóli án aðgreiningar að virka? Hvert er markmið menntunar? Þær Sara Rós Kristinsdóttir og Linda Björk Oddsdóttir settust niður með okkur og ræddu þær áskoranir sem einhverf börn kljást við í skólakerfinu. Þáttur sem enginn ætti að láta framhjá sér fara!

Netöryggi á nýjum tímum 1: Sigurður Haukur Gíslason


Í fyrsta þætti Netöryggi á nýjum tímum ræðir Bryndís Jónsdóttir við Sigurð Hauk Gíslason, kennsluráðgjafa í upplýsingatækni við grunnskóla Kópavogs. Þau ræddu meðal annars um börn og snjalltæki, reglur, skjátíma og það jákvæða sem tæknin gefur okkur.

Netöryggi á nýjum tímum 2: Hjálparsími og netspjall Rauða krossins 1717


Hanna Ruth Ólafsdóttir og Sandra Björk Birgisdóttir verkefnastjórar Hjálparsíma Rauða krossins 1717 kíktu til okkar og spjölluðu sín á milli um starfsemi 1717, hver það eru sem nýta og geta nýtt þjónustu hjálparsímans og gefa góð ráð hvað hægt að gera ef manni líður illa. Þær ræddu einnig ýmis mál sem brennur á ungu fólki eins og neteinelti og hvað sé hægt að gera ef einhver lendir í því.

Netöryggi á nýjum tímum 3: Ábendingalína Barnaheilla


Þóra Jónsdóttir, verkefnastjóri hjá Barnaheillum og Eiríkur Ásgeirsson rannsóknarlögreglumaður hjá lögreglunni á Suðurnesjum ræða saman um Ábendingalínu Barnaheilla. Þau svara spurningum um hvað sé gert við tilkynningarnar sem berast og afhverju það er mikilvægt að tilkynna ef við sjáum ólöglegt eða óviðeigandi efni. Hægt er að finna Ábendingalínu Barnaheilla á Url: https://www.barnaheill.is/is/abendingalina eða með því að smella á strokleðrið efst í hægra horninu á barnaheill.is

Netöryggi á nýjum tímum 4: Interview with Thordis Elva (English)


An interview with Thordis Elva, chairperson of NORDREF. They resently held a seminar called When Sexual Privacy Meets Gender-Equality in a Digital World. Thordis Elva tells us all about the seminar and what NORDREF is doing to combat online abuse in this episode of the SAFT podcast. #Saferinternetday #SID2022

Netöryggi á nýjum tímum 4: Viðtal við Þórdísi Elvu. (Íslenska)


Við tókum viðtal við Þórdísi Elvu, stjórnarformann NORDREF, en samtökin héldu málþing um kynferðislega friðhelgi á stafrænum tímum. Í Í samtalinu ræðum við um málþingið og hvernig þessi málaflokkur hefur þróast á undanförnum árum. #sid2022 #saferinternetday

Netöryggi á nýjum tímum 5: Réttindi barna og netið


Eyrún Eva Haraldsdóttir, sérfræðingur hjá SAFT, ræðir við Pétur Hjörvar Þorkelsson, sérfræðing í innleiðingu Barnasáttmálans hjá UNICEF, um réttindi barna og síbreytilegan stafrænan heim.

Nöldrað um netið með Sigga og Siggu Dögg 1: Samskipti á netinu.


Í þessari hlaðvarpsseríu fara Sigurður Sigurðsson sérfræðingur í miðlanotkun barna og ungmenna og Sigga Dögg kynfræðingur yfir helstu umræðuefni sem brenna á foreldrum varðandi netnotkun barna sinna. Markmiðið með hlaðvörpunum er að þau verði upphafið að jákvæðri umræðu milli foreldra og barna um málefni netsins. Því getur verið sniðugt að hlusta á þættina með börnunum og halda svo umræðunni áfram. Hver þáttur endar með spurningum sem foreldrar og börn geta rætt um sín á milli eftir hlustun. Í þessum fyrsta þætti er umræðuefnið samskipti á netinu. Meðal annars neikvæð samskipti og þá pressu sem við setjum á hvort annað að svara netskilaboðum samstundis

Nöldrað um netið með Sigga og Siggu Dögg 2: Myndbirtingar


Í þessari hlaðvarpsseríu fara Sigurður Sigurðsson sérfræðingur í miðlanotkun barna og ungmenna og Sigga Dögg kynfræðingur yfir helstu umræðuefni sem brenna á foreldrum varðandi netnotkun barna sinna. Markmiðið með hlaðvörpunum er að þau verði upphafið að jákvæðri umræðu milli foreldra og barna um málefni netsins. Því getur verið sniðugt að hlusta á þættina með börnunum og halda svo umræðunni áfram. Hver þáttur endar með spurningum sem foreldrar og börn geta rætt um sín á milli eftir hlustun. Umræðuefnið þessa vikuna eru myndbirtingar og þá pressu sem við finnum fyrir að birta myndir á samfélagsmiðlum.

Nöldrað um netið með Sigga og Siggu Dögg 3: Hvernig ræðum við um netið sem fjölskylda


Umræðuefni vikunar er að þessu sinni hvernig við ræðum um netið sem fjölskylda. Í þessari hlaðvarpsseríu fara Sigurður Sigurðsson sérfræðingur í miðlanotkun barna og ungmenna og Sigga Dögg kynfræðingur yfir helstu umræðuefni sem brenna á foreldrum varðandi netnotkun barna sinna. Markmiðið með hlaðvörpunum er að þau verði upphafið að jákvæðri umræðu milli foreldra og barna um málefni netsins. Því getur verið sniðugt að hlusta á þættina með börnunum og halda svo umræðunni áfram. Hver þáttur endar með spurningum sem foreldrar og börn geta rætt um sín á milli eftir hlustun.

Nöldrað um netið með Sigga og Siggu Dögg 4: Fjölskyldureglur og fullorðnir sem fyrirmynd


Í þessum þætti ræða Siggi og Sigga Dögg um mikilvægi fjölskyldureglna og hvernig við sem fullorðið fólk þurfum að huga að okkur sjálfum sem fyrirmynd barna okkur þegar kemur að netnotkun. Í þessari hlaðvarpsseríu fara Sigurður Sigurðsson sérfræðingur í miðlanotkun barna og ungmenna og Sigga Dögg kynfræðingur yfir helstu umræðuefni sem brenna á foreldrum varðandi netnotkun barna sinna. Markmiðið með hlaðvörpunum er að þau verði upphafið að jákvæðri umræðu milli foreldra og barna um málefni netsins. Því getur verið sniðugt að hlusta á þættina með börnunum og halda svo umræðunni áfram. Hver þáttur endar með spurningum sem foreldrar og börn geta rætt um sín á milli eftir hlustun.

Nöldrað um netið með Sigga og Siggu Dögg 5: Sexting, myndbirtingar og mörk


Í þessum þætti ræða Siggi og Sigga Dögg um Sexting, myndir, pressuna að taka þátt og mörk. Í þessari hlaðvarpsseríu fara Sigurður Sigurðsson sérfræðingur í miðlanotkun barna og ungmenna og Sigga Texti: Dögg kynfræðingur yfir helstu umræðuefni sem brenna á foreldrum varðandi netnotkun barna sinna. Markmiðið með hlaðvörpunum er að þau verði upphafið að jákvæðri umræðu milli foreldra og barna um málefni netsins. Því getur verið sniðugt að hlusta á þættina með börnunum og halda svo umræðunni áfram. Hver þáttur endar með spurningum sem foreldrar og börn geta rætt um sín á milli eftir hlustun.

Það þarf þorp – Forvarnir og áhættuhegðun


Spjall við Kára Sigurðsson, verkefnastjóra forvarna hjá skóla- og frístundasviði Reykjavíkur. Við spjöllum um áhættuhegðun barna og unglinga. Einnig ræðum við um forvarnir og gefum foreldrum og forsjáraðilum verkfæri til nýta með sínum börnum.

Það þarf þorp – Kjarabarátta kennara


Magnús Þór formaður Kennarasambands Íslands mætti í spjall og fór yfir stöðuna í kjarabaráttu kennara.

Það þarf þorp – Okkar heimur


Í þessum þætti er rætt við Sigríði Gísladóttur og Þórunni Eddu Sigurjónsdóttur um Okkar heim. Okkar heimur er stuðningsúrræði fyrir börn sem eiga foreldra með geðrænan vanda. Úrræðið var sett á laggirnar vegna skorts á stuðning og fræðslu fyrir börn í þessari stöðu á Íslandi. Sigríður og Þórunn Edda ræða um starfsemina, stöðuna á Íslandi í málaflokknum og ýmislegt fleira.

Það þarf þorp – Skóli í skýjunum


Spjall við Esther Ösp Valdimarsdóttir skólastjóra og tengilið farsældar í Ásgarðsskóla – skóla í skýjunum. Ásgarðsskóli er ekki hefðbundinn skóli en aðsóknin er mikil. Skólinn er búinn að stækka hratt á þeim þremur árum sem hann hefur starfað og er að stimpla sig inn sem frábær viðbót við skólakerfið okkar.

Það þarf þorp 2. Magnús Þór Jónsson


Magnús Þór Jónsson, verðandi formaður Kennarasambands Íslands kíkti í heimsókn til okkar og Arnar Ævarsson spjallaði við hann um stöðuna í skólunum í dag, framtíðarsýn hans og samstarf heimila og skóla.

Það þarf þorp 3: Einelti – Allt það nýjasta frá World anti-bullying forum (fyrri hluti)


Bryndís Jónsdóttir sérfræðingur hjá Heimili og skóla ræðir við Sigríði Björk Einarsdóttur framkvæmdastjóra SAMFOK, Salvöru Sæmundsdóttur sérfræðing hjá Umboðsmanni barna og Stellu Hallsdóttur lögfræðing hjá Umboðsmanni barna um eineltismál. Umræðuefni okkar í dag er einelti á breiðum grunni. Fyrir skömmu tóku þær þátt í World anty-bullying forum ráðstefnunni í Stokkhólmi. Ráðstefnan er mikilvægur vettvangur fyrir samtal milli þeirra sem stunda rannsóknir á einelti, þeirra sem starfa að forvörnum, hagsmunaaðila og þeirra sem vinna við stefnumörkun enda er áhersla á þekkingu byggða á rannsóknum. Meðal annars er rætt um það sem fram fór á ráðstefnunni.

Það þarf þorp 3: Hinsegin börn og ungmenni


Bryndís Jónsdóttir, sérfræðingur hjá Heimili og skóla, ræðir við Tótlu I. Sæmundsdóttur, fræðslustýru hjá Samtökunum 78, um starfsemi samtakanna og málefni hinsegin barna.

Það þarf þorp: 1. Hvað er Heimili og skóli?


Bryndís Jónsdóttir sérfræðingur hjá Heimili og skóla ræðir við Arnar Ævarsson framkvæmdarstjóra samtakanna um hvað Heimili og skóli gerir og fara yfir helstu verkefni.

Það þarf þorp: Börnin eru besti mælikvarðinn


Þorvar Hafsteinsson, formaður Heimilis og skóla, ræðir um mikilvægi foreldrastarfs.

Það þarf þorp: Helga Margrét Guðmundsdóttir


Í tilefni 30 ára afmælis Heimilis og skóla fengum við Helgu Margréti Guðmundsdóttur, fyrrverandi formann Heimilis og skóla, til að segja okkur frá ferlinum í foreldrastarfi.