Hefur þú orðið fyrir ofbeldi?

1717 (ókeypis, nafnlaust, allan sólarhringinn)

Hringdu í 112 í neyð

Asset 1




Farsæld, samstarf og fjöltyngi

Móðurmál samtök um fjöltyngi og Heimili og skóli héldu á dögunum fræðsluerindi um foreldrastarf, tómstundastarf og fjöltyngi. Áhugasamir geta horft á upptöku af erindinu hér að neðan. 

Foreldraverðlaun Heimilis og skóla 2024

Foreldraverðlaun Heimilis og skóla voru afhent í 29. sinn við hátíðlega athöfn í Safnahúsinu við Hverfisgötu, miðvikudaginn 29. Maí 2024. Brekkuskóli á Akureyri og Öldutúnsskóli í Hafnarfirði hlutu verðlaunin að þessu sinni. Verkefnin stuðla að góðri og náinni samvinnu milli heimila og skóla, eru í takti við Farsældarsáttmála Heimilis og skóla ásamt því að ríma […]

Dagur gegn einelti

Föstudaginn 8.nóvember 2024, afhentu Ásmundur Einar Daðason mennta- og barnamálaráðherra og Jóhann Gunnarsson formaður Heimili og skóla hvatningarverðlaun Dags gegn einelti við hátíðlega athöfn í Tækniskólanum.  Fagráð eineltismála hjá Menntamálastofnun valdi verðlaunahafa úr innsendum tilnefningum og fyrir valinu varð: Freyja Rós Haraldsdóttir, kennari, jafnréttisfulltrúi og gæðastjóri við Menntaskólann á Laugarvatni.  Í rökstuðningi fagráðs eineltismála hjá […]

Farsældarsáttmálinn er kominn út

Farsældarsáttmálinn er verkfæri sem gerir foreldrum og öðrum sem koma að degi barnsins kleift að ræða sín á milli og setja niður ákveðin viðmið eða gildi sem þeim finnast mikilvæg til þess að styðja við þroska og farsæld allra barna í nærsamfélaginu.  Nú þegar hafa nokkur sveitarfélög, skólar og aðrir sem koma að degi barna […]

Þetta er einhver samfélagssýki

Sérfræðingur í forvörnum segir mikilvægt að foreldrar ræði við börn sín um hætturnar sem fylgt geta tálbeituaðferðum. Myndbönd sem sýna ungmenni ganga í skrokk á meintum barnaníðingum eru í dreifingu á samfélagsmiðlum. Undanfarið hefur verið fjallað um hóp ungmenna sem stundar það að nota tálbeituaðferðir til að lokka til sín meinta barnaníðinga í þeim tilgangi […]

Aðalfundur 2025

Aðalfundur Heimilis og skóla – landssamtaka foreldra verður haldinn miðvikudaginn 21. Maí 2025 kl.16:30. Fundurinn fer fram í þjónustumiðstöð Heimilis og skóla, Skeifunni 19, fjórðu hæð. Á dagskrá verða hefðbundin aðalfundarstörf. Tilkynningar um framboð til stjórnar skal senda á heimiliogskoli@heimiliogskoli.is en framboðsfrestur er alveg fram að aðalfundi Fyrir aðalfundinn liggur ein lagabreytingartillaga sem lögð er fram af […]

Öruggt íþrótta- og æskulýðsstarf í sumar

Mikilvægt er að þeir aðilar sem koma að því að skipuleggja og framkvæma viðburði og annað æskulýðsstarf fyrir börn séu meðvitaðir um ábyrgð sína, þekki einkenni ofbeldis og viti hvert skal leita ef grunur vaknar um að barn hafi orðið fyrir ofbeldi. Samstarfshópur á vegum Barna- og fjölskyldustofu, Embættis landlæknis, Heimili og skóla, Jafnréttisstofu, lögreglunnar, […]

Aðalfundur 2026

Aðalfundur Heimili og skóla árið 2026 verður haldinn í Vatnsendaskóla, laugardaginn 30. maí kl. 13:30