Hefur þú orðið fyrir ofbeldi?

1717 (ókeypis, nafnlaust, allan sólarhringinn)

Hringdu í 112 í neyð

Asset 1




Ný stjórn Heimili og skóla: Foreldrar fái sterkari rödd í samfélagsumræðunni

Ný stjórn Heimilis og skóla: foreldrar fái sterkari rödd í samfélagsumræðunni

Sigvaldi Egill Lárusson hefur tekið við sem formaður Heimilis og skóla – landssamtaka foreldra, ásamt nýrri stjórn. Nýja stjórnin boðar breyttar áherslur þar sem samtökin verða öflugri talsmaður foreldra í opinberri umræðu um menntun og velferð barna. 

Á aðalfundi Heimilis og skóla, sem haldinn var laugardaginn, 30. Mai 2026, var Sigvaldi Egill Lárusson kjörinn formaður samtakanna. Með honum tekur sæti ný stjórn sem hyggst efla rödd foreldra á sviði menntamála og barnamála í íslensku samfélagi.

„Foreldrar eru stærsti einstaki hagsmunahópurinn í menntakerfinu, en rödd þeirra hefur ekki alltaf heyrst nógu skýrt í samfélagsumræðunni,” segir Sigvaldi. „Við viljum breyta því. Heimili og skóli á að vera öflugur og sýnilegur talsmaður foreldra þegar teknar eru ákvarðanir sem snerta börnin þeirra, hvort sem það varðar námsmat, líðan í skóla, stafrænt umhverfi eða önnur stór mál.”

Umræðan um menntamál hefur verið afar fyrirferðarmikil síðustu árin allt frá samræmdu námsmati til líðan barna og stafræns umhverfis. Í þeirri umræðu hefur hins vegar oft vantað sjónarhorn foreldra. Nýja stjórnin hyggst breyta því og tryggja að rödd foreldra heyrist skýrt þegar fjallað er um mál sem snerta börnin þeirra.

Sigvaldi Egill  tekur við keflinu af Jóhanni Gunnarssyni og hlakkar til að vinna með nýrri stjórn að þessum áherslum á komandi starfsári.

Ný stjórn Heimilis og skóla

Á aðalfundinum voru eftirtalin kjörin í stjórn samtakanna ásamt Sigvaldi Agli Lárussyni, formanni:

  • Hermann Arnar Austmar
  • Karen Kristine Pye
  • Stefán Karl Snorrason

Fyrir í stjórn sitja áfram:

  • Héðinn Svarfdal Björnsson
  • Kristín Ólöf Grétarsdóttir
  • Salka Hauksdóttir

Varamenn:

  • Atli Þór Jóhannsson
  • Dagný Hróbjartsdóttir
  • Kristófer Nökkvi Sigurðsson
  • Stefán Þór Helgason

Um Heimili og skóla

Heimili og skóli – landssamtök foreldra voru stofnuð árið 1992 og hafa það að markmiði að stuðla að bættum aðstæðum til menntunar og uppeldis barna og ungmenna, efla gott samstarf heimila og skóla og vera málsvari foreldra og barna. Á síðustu árum hafa samtökin verið að vinna að innleiðingu Farsældarsáttmála Heimilis og skóla með vinnustofum fyrir foreldra um land allt. Farsældarsáttmálinn gefur foreldrum tækifæri til þess að forma samstarf sín á milli, styrkja foreldrastarfið og hlutverk foreldra sem lykilaðila í að skapa farsælt samfélag.

Aðrar fréttir

Sigurður Sigurðsson í viðtali hjá RÚV útvarpi

Engar töfra­lausnir við hegðunarvanda barna

Dagur gegn einelti

Foreldraverðlaun Heimilis og skóla 2024

Farsældarsáttmálinn er kominn út

Farsæld, samstarf og fjöltyngi

Foreldrasími Heimilis og skóla

Foreldraverðlaun Heimilis og skóla 2022

Þetta er einhver samfélagssýki

Aðalfundur 2026

Öruggt íþrótta- og æskulýðsstarf í sumar

Aðalfundur 2025